fimmtudagur, júní 12, 2003

Djamm og læti
Það var ágætlega djammað á helginni og unnið líka...þó þakka ég guði fyrir að hafa ekki verið að vinna um daginn á sunnudaginn því ég var skelþunn/veik...þ.a.e.a.s. hafði verið með kvef í nokkra daga og fór svo á djammið eins og ekkert væri og afleiðingin...magakveisa ;0) en er búin að janfa mig núna....mér finnst tíminn einvhern vegin vera búinn að líða svo hægt en samt er rúmur mánuður síðasn ég skrifaði síðast....vá þetta líður hratt eftir á....en núna ætla ég að fara að koma mér í háttinn eða horfa á sjónvarpið eða eitthvað svo planið fyrir þess helgi er að fá Ísak og Lalla til að fara með mig að kafa!! Bæ 'ðe vei Ísak er að fara til Spánar og ætlaði að fara á köfunarbjörgunarnámskeið-eitthvað en má það ekki því hann er ekki með réttindi eins og ég haha....þó hann sé mun reyndari og allt það þá er ég með Open Diver skírteini frá PADI liggaliggaláááái....splitar ekki diff þó ég sé að skrifa þetta því hann fer örugglega ekki á þessa síðu, engu að síður liggaliggalááái....jæja nóg í bili heyrumst fljótt

þriðjudagur, júní 03, 2003

Vinna
Jæja nú er mín búin að vera duglega að vinna síðustu vikur og daga og bara í gær var í að vinna í 13klt (tvö.fld vakt) Bryn kom í bæin um helgina og við skemmtum okkur bara nokkuð vel....svo er ég bara að vinna fullt starf og fæ útborgað núna á föstudaginn....reyndar er búin að leggja fyrir í háskólann og borga skólann en það þarf víst að borga bækur líka
skrifa meira næst þegar ég man svona hvað merkilegt er búið að gerast hjá mér....

þriðjudagur, maí 13, 2003

Mig langar bara að minn fólk á að þó ég sé komin heim á klkann þá má samt að skrifa í bókin hjá (þ.e.a.s. gestabókina) vildi bara minna fólk á hana :0)
Annars er ekekrt nýtt var að vinna í gær (frídagurinn minn) og fer að vinna aftur í kvöldsvo er ég í fríi á morgun.......en að fá frí í þessu fyrirtæki er ég alveg búin að gefa upp á bátinn......;0)

sunnudagur, maí 11, 2003

Kosningar og tekíla
Þetta var ágætis helgi.....byrjaði djammið á föstudaginn...átti sem sagt að vera að vinna á laugardaginn og ætlaði ekkert að fara að djamma daginn áður. Þess vegna vinna á barnum um kvöldið. En svo fékk ég bara frí á lau. og ég og Ester fórum á tekílafyllerí. Það líður mér seinnt úr minni ;0) Við álváðum líka að dressa okkur upp og fara í pils og vera sætar...hmmmm kem að því seinna. Við byrjuðum bara rólega fengum okkur margarítu, rótsterka og tók því dálítinn tíma að koma því niður en hafðist þó ótrúlegt sé....svo komu Þórey og Edda Katrín til okkar og við byrjuðum að skjóta tekíla (missti töluna eftir 5) og eins og þegar setlpur koma saman þarf að kjafta en við komum okkur út um 1 leitið sem er met hjá mér og Esteri....þegar við vorum komnar á ballið hittum við fullt af fólki t.d. Holræsiskarlana (strákar sem koma hingað með reglulegu millibili og maður farin að þekkja nokkuð vel) ég alla vena talaði við þá eitthvað. Við fórum á barinn og fengum okkur nýtt Smirnoff vodka með appelsínu bragði útí appelsín, ekkert smá gott mæli með því!! :0) Svo þegar ég var að labb framhjá stólunum til að setjast hjá stelpunum og Eiríku (hittum hann líka) festist klaufin sem var aftan á oilsinu í á einu stólbakinu og rifnaði eiginlega alveg upp í rennilás....ég var svolítið vandræðaleg og vildi helst fara heim til að skipta um þegar ég fattaði að ég gæti bara snúið því þannig klaufin var á hliðinni....ógeðslega hátt uppi!!!!! En það var allt í lagi og ég varð bara að passa upp á hana þegar ég sat, reyna að vera svolítið dönnuð. Svo vorum við búin að sitja þarna í einvhern tíma og spjalla við Eirík, þegar mér datt í hug að fara og taka tekíla skot (maður verður háður þessu) engin vildi fara með mér á barinn nema Eiríkur, and off we go....við förum á barinn og ég panta tvö tekíla, fer úr jakkanum og hendi honum á borðið þegar Þórey kemur og spyr hvað við erum að gera en fer eiginlega áður en ég get svarað og sný mér við og kalla á eftir henni hvort hún vildi taka skotið með okkur þegar ég tek eftir því að jakkinn minn á borðinu stendur í ljósum logum!!!!! Þórey sér þetta líka og við hlaupum báðar til og byrjum að lemja jakkann.....eftir þessi miklu slökkvistörf náðum við að drepa alla loga og glóðir en skaðin var skeður....það er stórt gat á vinstri erminni á svarta, riflaða flauelsjakkanum mínum!!!!!! Svo sorglegt...og hann er handónýtur (bókstaflega) en ég syrgði hann ekki lengi endan voru skotin tilbúin á barnum...eftir skotin fórum við upp að dansa síðasta dansinn og fljótlega eftir það fórum við út....úti fundum við gamlan skáta með kassagítar (hann er einu ári yngri en ég) og þar stóðum við að syngja brot og brot úr lögum (en engin heil) svo vara bara labbað heim í róleg heitunum, samt skítakuldi fyrir stelpu í rifnu pilsi og brenndum jakka......svona eru tekílafylleríin á Íslandi.....í gær, kosningarkvöldi var ég að vinna frá 18:00 til 04:00 og aftur í kvöld kl.19:00, nóg að gera.....
jæja gott í bili heyrumst seinna