miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Afmæli og kvef

frábært átti afmæli í gær sem er svo sem ekki frásögufærandi nema hvað ég er ferlaega slöpp í dag...og eiginlega líka í gær. Binni sagði mér að Emma systir hans ætlaði að kíkja í heimsókn en það var einhver misskilningur og hún kemur líklega í kvöld eða eitthvað. Binni þurfti endilega að gefa mér aðeins meira en iPOD í ammælisgjöf og gaf mér 10.000 gjafabréf í Kringluna :oD ég var sko ekki lengi að ákv í hvaða búð þetta skildi að miklu leiti fara í.... La Senza takk fyrir!!!! Eyddi góðum 30mín+ í að máta og var mjööööög sátt þegar ég gekk út, á reynda smá eftir að peningnum og ætla eyða því í buxur á morgun ef ég kemst frammúr. Við fórum svo út að borða á Ask sem ég hélt að væri tiltölulega fínni staður en þetta var svo sem ágæt. Svo vorum við bara heima að horfa á svjónvarpið, x-box og lesa (ekki allt í einu). Svo vaknaði ég í morgun með stíflað nef og hósta, og er komin núna með hálfgerða beinverki og eitthvað asnaleg...sam ekki nógu veik til að fara heim :o(
Ætlum svo að fara að skoða rúm í Svefn&Heilsa á morgun....förum að fara að sofa betur

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn kjútí!

Anna María sagði...

Til hamingju með daginn þann fimmtánda! Ég var akkurat að taka verklega bílprófið þá og ég fæ bílprófið núna eftir hálftíma. ;)

Nafnlaus sagði...

Hérna.... ertu enn slöpp?